Íslenskur æðardúnn ehf – Stofnað 1991
Íslenskur æðardúnn hefur frá árinu 1991 selt æðardún á markaði erlendis, aðallega til Japan og Þýskalands, en einnig til annarra landa. Íslenskur æðardúnn hefur getið sér gott orðspor fyrir að bjóða eingöngu upp á æðardún sem uppfyllir ströngustu gæðakröfur erlendra kaupenda.
Þennan góða árangur má rekja til þess að félagið selur eingöngu æðardún sem hreinsaður hefur verið af fólki sem hefur áralanga þekkingu og reynslu af meðhöndlun æðardúns. Sama starfsók hefur starfað við hreinsunina um árabil og njótum við þeirrar reynslu, þekkingu og færni sem starfsólkið býr yfir.
Dúnninn tryggður
Allur dúnn sem er í okkar vörslu er tryggður skv. tryggingaskilmálum TM.TM sér um tryggingar dúns í okkar vörslu.
Allur dúnn sem er í okkar vörslu er tryggður skv. tryggingaskilmálum TM.
Gæði dúnsins
Íslenskum æðardúni er ákaflega annt um gæði dúnsins. Þar ræður miklu að dúnninn komi vel þurr í hreinsunina.Þurr dúnn skiptir miklu máli
Jafnframt skiptir máli að dúnninn sé geymdur í pokum sem anda. Raki í æðardúni getur auðveldlega skemmt hann og þ.a.l. rýrt hann.
Flutningur dúns til okkar
Dúneigandi þarf ekki að bera flutningskostnað vegna flutnings á óhreinsuðum dúni sem fer í hreinsun og sölu.Við greiðum fyrir flutning
Óskað er eftir því að dúnninn sé fluttur til okkar sjó- eða landveg, merkt að viðtakandi greiði flutningsgjald.
Íslenskur æðardúnn – Dúnhreinsunin
Íslenskum æðardúni er ákaflega annt um gæði dúnsins. Þar ræður miklu að dúnninn komi vel þurr í hreinsunina. Jafnframt skiptir máli að dúnninn sé geymdur í pokum sem anda. Raki í æðardúni getur auðveldlega skemmt hann og þ.a.l. rýrt hann. Til að auka líkur á því að vel fari um dúninn á meðan á flutningi og varðveislu hans stendur sendum við bændum dúnpoka/ullarballa sem við mælum með að séu notaðir. Þessir pokar eru mun heppilegri en plastpokar og rifna síður í flutningi. Jafnframt fylgja með merkispjöld, til að merkja pokana nafni eiganda og með heimilisfangi okkar til að dúnninn berist örugglega á réttan stað. Um leið og dúnninn kemur á leiðarenda er móttaka hans staðfest.
Allur dúnn sem er í okkar vörslu er tryggður skv. tryggingaskilmálum TM.
Dúneigandi þarf ekki að bera flutningskostnað vegna flutnings á óhreinsuðum dúni sem sendur er í hreinsun og sölu í Stykkishólm, svo fremi að hann sé fluttur land- eða sjóveg.
Dúnhreinsunin aðsetur
Dúnhreinsunin er staðsett á Nesvegi 13, Stykkishólmi. Þar fer einnig fram móttaka á dúni frá bændum.